..já gletturnar eru byrjaðar að hita upp fyrir Parísar
stemminguna 2007,..... kaffihús í hverjum mánuði.......mér telst
til að við getum verið búnar að ná um tuttugu upphitunum fyrir XX
áratuga afmælið...
..af kaffihúsasamsætinu í dag er þetta helst markvert:
...þær sem mættu voru: Alma, Ólafía, Sólrún, Jóhanna Jóh, Magga
Gunnars (töff) og undirrituð... Lóa Skarp
mætti í gær kl. 17:00 og boðaði því forföll í dag..... við
fyrirgefum henni slíkt, því Lóa er á miklu heimshornflakki og
ekki von til þess hún viti hvaða dagur er.......en Magga Gunnars
kom nokkuð seint þar sem hún var búin að fara á Lækjarbrekku og
grípa í tómt.... það er samdóma álit að skammtíma minni þeirra sé
farið að dala, en langtíma minnið er nokkuð gott,.....alla vega hjá
Möggu, því sennilega hittumst við á Lækjarbrekku fyrir all mörgum
árum...og það man hún..
.. umræðuefni skorti ekki, en svolítið bar á að sumar væru
að misskilja talað mál sem ....er...eftir því sem sérfræðingar á
minnismóttökunni segja byrjun á dalandi heyrn..... sjónin í hópnum
þarfnast ekki skýringa... allar eiga gleraugu... ýmist í
skúffu.... eða í bandi... og einstaka hafði þau á nefinu..... en
alla vega.. þetta var yndisleg samvera og þegar við
fórum kl 19:00 var búið að skipta um vakt á kaffihúsinu... við erum
sem sagt.... tveggja vakta konur í kaffihúsatíma.......
vona að sem flestar komist þann 30 mars, sami staður, sami
tími ....upphitun númer tvö
Guðný Bjarna
PS. verið svo duglegar að skrifa ..vera með
skoðun..!!!